Páll Magnússon svarar bréfi Leoncie

-söngkonan vill komast í Eurovision

„Sæll Páll. Margir Íslendingar hafa bent mér á að syngja fyrir Íslands hönd í Eurovision,“ segir söngkonan Leoncie í bréfi sem hún sendi Páli Magnússyni útvarpsstjóra en söngkonan vill fá að taka þátt í forkeppni Eurovision, Söngvakeppni Sjónvarpsins. Leoncie hefur sent lög í keppnina sem hingað til hafa ekki hlotið náð fyrir augum dómnefndarinnar sem velur lögin í lokakeppnina.

„Margir segja við mig að þið á RÚV séuð bara hrædd um ég muni vekja of mikla athygli með frábærum söngstíl mínum og lagi,“ segir Leoncie einnig í bréfinu þar sem hún leitar á náðir sjónvarpsstjórans um að leiðrétta það óréttlæti sem hún telur sig hafa orðið fyrir af hálfu stofnunarinnar.

„Leoncie er að sjálfsögðu frjálst að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins eins og öllum öðrum ef hún svo kýs,“ sagði Páll Magnússon þegar DV leitaði viðbragða hans vegna bréfsins. „Þannig svaraði ég erindi hennar, hvatti hana til að kynna sér reglurnar og taka síðan þátt ef hún hefði áhuga á því.“

Bréfið er ekki það eina sem Leoncie hefur sent útvarpsstjóranum en í öðru bréfi sem DV hefur undir höndum segist hún hafa mikinn áhuga á að vera fulltrúi Íslands í Eurovision. Hún hvetur útvarpsstjóra til að breyta núverandi reglum og senda sig beint í lokakeppnina. „Ég hef engan áhuga á að láta allskonar viðvaninga sem þykjast vera tónlistarsérfræðingar hjá ykkur dæma mig. Enginn á Íslandi er hæfur til að dæma alþjóðlegu lögin mín. Ég er alþjóðlegt tónskáld, lagahöfundur og söngkona. Þú verður að breyta reglunum í ár og senda mig til að syngja í Eurovision.“

Leoncie segir enga ástæðu til þess að sóa peningum skattborgara með því að halda forkeppnina heldur væri nær að senda hana beint út. „Kannski líkar þér ekki það sem ég er að segja en ég er fullsödd af ykkar misrétti og fordómum í minn garð,“ skrifar hún ósátt.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.