Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
11:05 › 18. ágúst 2012
Margir ungir krakkar horfa upp til Hollywood-stjarna. Þess vegna eru frægir leikarar og vinsælt tónlistarfólk oft undir þeirri kröfu frá samfélaginu að vera góð fyrirmynd. Það er hins vegar langt í frá að allar frægustu stjörnur samtímans temji sér hegðun sem við viljum að börnin okkar api eftir. Hvort sem það eru frægir leikarar, leikkonur eða fólk sem hefur náð að „meika það“ innan tónlistarbransans má alltaf gagnrýna eitt og annað enda lifir þetta fólk sínu lífi undir smásjá fjölmiðla. Söngkonan Rihanna hefur oft látið hafa eftir sér að hún líti ekki á sig sem fyrirmynd en raunveruleikinn er sá að milljónir ungra stúlkna þrá fátt heitara en að vera eins og hún.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013