Einleikjahátíðin Act Alone fór fram um helgina á Suðureyri og gekk hátíðin vel að sögn aðstandenda hennar. Vel var mætt á atburði hátíðarinnar en frítt var á alla viðburði hennar.
Valgeir Guðjónsson kom fram á hátíðinni en það vildi svo óheppilega til að söngvaskáldið flaug á hausinn í gönguferð um Suðureyri. Í fréttaveitu Vestfjarða er greint frá málinu og kemur þar fram að Valgeir hafi hrasað um stein og flogið á hausinn, svo stórsá á honum. En hann lét það ekki á sig fá samkvæmt vestfirska miðlinum heldur hélt vel heppnaða tónleika um kvöldið.
Á tónleikunum frumflutti hann nýtt lag sem ber nafnið „Vor fyrir vestan“ við mikinn fögnuð tónleikagesta. Á meðal annarra listamanna sem komu fram á hátíðinni eru þeir Ársæll Níelsson, Svavar Knútur, Trúðurinn Lee Nelson og Árni Pétur Guðjónsson.

Hemmi Gunn fallinn frá