Vala Grand lauk fyrir skömmu seinni aðgerðinni sem fylgir kynleiðréttingu. Hún er yfir sig ástfangin og hefur dregið sig út úr sviðsljósinu – stjúpbarna sinna vegna. Vala segir börnin vera númer eitt en hún hafi þurft að læra það af því að hún var vön að vera í fyrsta sæti. Vala lætur ósmekkleg ummæli um sig á netinu ekki trufla sig og dansar fyrir framan spegil til að auka sjálfstraustið. Næst á dagskrá hjá Völu er að koma sér fyrir á nýja heimilinu og að fara í brjóstastækkun.
Vala Grand hefur verið áberandi í íslenskum fjölmiðlum undanfarin ár. Hún hefur rætt opinskátt um kynáttunarvanda sinn en Vala fæddist karlmaður og gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð fyrir um tveimur árum síðan. Margir hafa skoðun á Völu Grand, hvort sem fólk þekkir hana eða ekki. Því hún er ör, opin og segir nákvæmlega það sem henni býr í brjósti.
Fljótlega eftir aðgerðina dró Vala sig út úr sviðsljósinu og hefur lítið til hennar spurst undanfarið ár. Ástæðan er sú að Vala kynntist stóru ástinni skömmu eftir aðgerð, Eyjólfi, en hann á fjögur börn úr fyrra sambandi. Vala dró sig úr sviðsljósinu þeirra vegna.
Vala lauk nýverið við seinni aðgerðina sem fylgir kynleiðréttingu og er hæst ánægð með útkomuna. Næst á dagskrá hjá Völu er brjóstastækkun en hún segist óttast þá aðgerð meira en sjálfa kynleiðréttinguna. Þegar blaðamaður DV hitti á Völu var hún á leiðinni á frumsýningu myndarinnar Hrafnhildur en hún fjallar um íslenska konu sem gekkst undir sams konar aðgerð og Vala.
„Ástin mín, þú ert sú eina sanna“
Vala er hæstánægð með útkomuna úr seinni aðgerðinni sem fylgir kynleiðréttingunni. „Ég fór í aðgerðina í júlí og þetta er aðgerð þar sem klárað er að móta kynfærin. Það sést ekkert núna að ég hafi verið með typpi. Nú er ég komin með innri barma.“
Þegar Vala var á sjúkrahúsinu sendi Eyjólfur henni bréf sem hitti hana beint í hjartastað. „Það hljómar svona: Elsku litla hjartað mitt. Ég óska þér þess að þér líði sem best og náir fullum bata fljótt og um leið vil ég óska þér til hamingju með tveggja ára afmælið þitt. Þú kannski fæddist ekki eins og hinar stelpurnar en ástin mín, þú ert sú eina sanna, svo langflottust bæði á líkama og sál. Til að halda upp á baráttuna sem vannst loks fyrir tveimur árum ætla ég að gefa þér þennan dag sem sérstakan auka afmælisdag á hverju ári svo lengi sem ég lifi. Til hamingju með daginn elsku dúllan mín, þinn framtíðarmaður Eyjólfur Svanur.“
Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild sinni með því að smella á „Meira“.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013