Vala Grand lauk fyrir skömmu seinni aðgerðinni sem fylgir kynleiðréttingu. Hún er yfir sig ástfangin og hefur dregið sig út úr sviðsljósinu – stjúpbarna sinna vegna. Vala segir börnin vera númer eitt en hún hafi þurft að læra það af því að hún var vön að vera í fyrsta sæti. Vala lætur ósmekkleg ummæli um sig á netinu ekki trufla sig og dansar fyrir framan spegil til að auka sjálfstraustið. Næst á dagskrá hjá Völu er að koma sér fyrir á nýja heimilinu og að fara í brjóstastækkun.
Vala Grand hefur verið áberandi í íslenskum fjölmiðlum undanfarin ár. Hún hefur rætt opinskátt um kynáttunarvanda sinn en Vala fæddist karlmaður og gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð fyrir um tveimur árum síðan. Margir hafa skoðun á Völu Grand, hvort sem fólk þekkir hana eða ekki. Því hún er ör, opin og segir nákvæmlega það sem henni býr í brjósti.
Fljótlega eftir aðgerðina dró Vala sig út úr sviðsljósinu og hefur lítið til hennar spurst undanfarið ár. Ástæðan er sú að Vala kynntist stóru ástinni skömmu eftir aðgerð, Eyjólfi, en hann á fjögur börn úr fyrra sambandi. Vala dró sig úr sviðsljósinu þeirra vegna.
Vala lauk nýverið við seinni aðgerðina sem fylgir kynleiðréttingu og er hæst ánægð með útkomuna. Næst á dagskrá hjá Völu er brjóstastækkun en hún segist óttast þá aðgerð meira en sjálfa kynleiðréttinguna. Þegar blaðamaður DV hitti á Völu var hún á leiðinni á frumsýningu myndarinnar Hrafnhildur en hún fjallar um íslenska konu sem gekkst undir sams konar aðgerð og Vala.
Ekki hægt að kaupa hjartað
Vala segist aldrei hafa þurft að kvarta yfir því að fá ekki athygli frá hinu kyninu. Hvorki fyrir né eftir aðgerð. Tvö sambanda hennar hafa verið nokkuð opinber en það var við æskuástina Baldvin Vigfússon og svo hinn moldríka danska kaupsýslumanninn Nikolaj Voll. Hann rekur farsælt hugbúnaðarfyrirtæki og sparaði engu til þegar kom að því að kaupa gjafir handa Völu. Vala sagði meðal annars frá gjafaflóði Nikolaj í DV en hann gaf Völu BMW-bifreið, tölvur, skartgripi og hvað sem hana langaði í. En Vala segir peninga ekki geta keypt ást.
„Með honum leið mér eins og ég væri einhver fylgihlutur en peningarnir hans gátu ekki keypt hjarta mitt. Nikolaj vildi að ég væri bara einhver fín og flott húsfrú en það er ekki ég. Jú, jú ég get alveg verið snobbuð og allt það en ég þarf líka að geta verið svolítið fríkuð og haft læti,“ segir Vala um stormasamt sambandið með Nikolaj.
Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild sinni með því að smella á „Meira“.


Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi