Pattinson fluttur til Reese Witherspoon

Leikarinn eyðilagður

Eftir að hafa flutt út frá kærustu sinni hefur hjartknúsarinn Robert Pattinson gert sig heimkominn í sumarhúsi leikkonunnar Reese Witherspoon.

Twilight-stjarnar Pattinson er sagður í sárum eftir að mótleikkona hans í Twilight-seríunni sást í innilegum faðmlögum við leikstjórann Rupert Sanders. Kom í ljós að Kristen Stewart hafði haldið við leikstjórann í marga mánuði og kom það eðlilega illa við Pattinsons.

Witherspoon og Pattinson léku saman í myndinni Water for Elephants og urðu ágætis kunningjar á meðan tökum stóð. Hún bauð honum að gista í sumarhúsi sínu í Kaliforníu, en Witherspoon á von á barni með eiginmanni sínum Jim Toth.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.