Charlies: „Gengum í burtu frá samböndum, íbúðum og bílum“

Fórna öllu fyrir frægðina

Íslensku stelpurnar í The Charlies búa og starfa í Los Angeles þar sem þær vinna hörðum höndum að því að slá í gegn. Klara Ósk Elíasdóttir, Alma Guðmundsdóttir og Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir eru fullvissar um að þeim takist ætlunarverk sitt og segjast ekki ætla að gefast upp fyrr en þær hafa öðlast frægð og frama. Stelpurnar eru í fyrsta skiptið allar á lausu en þær fórnuðu meðal annars samböndum sínum við kærastana á Íslandi til að láta reyna á drauminn um að slá í gegn. Þær segja breytt og ögrandi útlit hluta af eðlilegum þroska. Stelpurnar eru í helgarviðtali í DV

Hverju hafið þið þurft að fórna fyrir bransann?

Steinunn : „Eiginlega öllu! Við gengum í burtu frá samböndum, íbúðum og bílum, frá ferlinum okkar heima og erum þúsundir kílómetra frá fjölskyldu og vinum.“

Alma: „Maður leggur mun harðar að sér þegar maður hefur gengið í burtu frá svona miklu og í raun verður sigurinn bara sætari fyrir vikið.“

Klara: „Við hreinlega tókum ákvörðun að við ætluðum að gera þetta sama hvað! Og við vissum að það er ekkert grín að reyna að láta drauma sína rætast. Það eru bara örfáir í heiminum sem fá alvöru tækifæri til þess. Við vitum að þó að við höfum þurft að fórna ýmsu til að komast hingað þá sé það og verði á endanum þess virði. Ég veit að ef við hefðum ekki ákveðið að gefa þessu allt sem við eigum gæti ég ekki litið tilbaka eftir 20 ár og hugsað „hvað ef“. Ég myndi alltaf líta til baka með eftirsjá.“

Eigið þið kærasta?

Steinunn: „Nei, við erum allar á lausu í fyrsta sinn síðan við byrjuðum í Nylon 2004 og við höfum í raun engan tíma fyrir samband eins og staðan er í dag.“

Eruð þið eitthvað að „deita“?

Steinunn: „Maður leyfir sér að skoða aðeins í kringum sig hérna. Allt öðruvísi „deit“-menning, hægt að fara út að borða með einhverjum án þess að það þýði neitt og maður hittir viðkomandi aldrei aftur. Samt langskemmtilegast bara að hafa gaman í góðra vina hópi, maður hefur engan tíma í eitthvað tilfinningavesen.“

Nánar er rætt við Klöru, Ölmu og Steinunni í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.