Britney vekur athygli í bikiní

Lítur vel út

Bandaríska söngkonan Britney Spears hefur verið dugleg í ræktinni ef marka má fjölmiðla vestanhafs. Þessi tveggja barna móðir birti mynd af sér og börnunum sínum á samfélagsvefnum Twitter þar sem þau eru á leiðinni í sundlaug á Hawaii.

Bandaríska fréttasíðan The Huffington Post veltir fyrir sér hver hafi tekið myndina og kemur þar fram að líklegast sé það unnusti Britney, Jason Trawick, sem fékk Britney og börn til að brosa svona fallega.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.