Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
13:00 › 6. júlí 2012
Fyrirsætan Ósk Norðfjörð eignaðist sitt sjötta barn í júní. Kærasti og barnsfaðir Óskar, frjálsíþróttakappinn Sveinn Elías Elíasson, tók á móti barninu en um heimafæðingu var að ræða. Ósk útilokar ekki frekari barneignir og hlakkar til að njóta lífsins með gullmolunum sínum.
„Drengurinn er dásamlegur og við erum öll alsæl,“ segir fyrirsætan Ósk Norðfjörð sem eignaðist sitt sjötta barn þann 23. júní. Kærasti og barnsfaðir Óskar er frjálsíþróttakappinn Sveinn Elías Elíasson en litli drengurinn er hans fyrsta barn.
Ósk fæddi barnið heima en þetta var hennar þriðja heimafæðing.


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013