Justin Bieber tekinn fyrir ofsaakstur

Vitni segir hann hafa verið á 160 kílómetra hraða

Justin Bieber var tekinn fyrir ofsaakstur í Los Angeles í dag, en sjónarvottur segir hann hafa ekið fram úr sér á yfir 160 kílómetra hraða.

Dennis Zine, vitni að atburðinum sem starfaði í 18 ár sem lögregluþjónn í L.A., segir í samtali við slúðurmiðilinn TMZ að Bieber ætti að vera sviptur réttindunum fyrir svona glannalegan akstur. Segir hann að Bieber hafi tekið fram úr honum á ofsahraða á krómlituðum Fisker Karma-sportbíl.

„Bieber var keyrandi eins og brjálæðingur. Hann var skiptandi um akbrautir þar sem næstum ekkert pláss var á milli bíla,“ segir Dennis í samtali við TMZ. „Ég var á tæplega hundrað kílómetra hraða og hann skaust framhjá mér eins og eldflaug. Ef ég hefði verið á vakt, þá hefði ég handtekið hann fyrir glannaakstur.“

Bieber mun hafa verið að reyna að stinga hóp ljósmyndara af. Þegar lögreglan loks stöðvaði Bieber munu að minnstu fjórir hafa setið um bílinn og tekið myndir af atburðinum.

Umboðsmaður Bieber sagði Dennis vera að gera of mikið úr málinu. Söngvarinn hafi verið sektaður fyrir að aka á tæplega 130 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraðinn er tæpir 90 kílómetrar á klukkustund.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.