Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:09 › 5. júlí 2012
Þórunn Antonía Magnúsdóttir sem er ein vinsælasta söngkona landsins og rapparinn úr XXX Rottweiler hundum, Ágúst Bent Sigbertsson eru hætt saman samkvæmt nýjasta tölublaði Séð og Heyrt sem kemur út í dag.
Stjörnuparið hefur verið saman í rúm 3 ár en Þórunn bjó í London og sagði hún í viðtali við DV árið 2009 að ein af ástæðum þess að hún flutti aftur heim til Íslands var til að vera með Ágústi Bent.
Ágúst Bent og Þórunn hafa verið samstíga í mörgu og unnu meðal annars saman í þáttunum Steindin okkar, þar sem Þórunn lék ýmis hlutverk og Ágúst Bent leikstýrði henni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013