Komin með samning hjá bandarísku plötufyrirtæki

Lag Elízu Newman mun hljóma í áströlskum sjónvarpsþætti

Tónlistarkonan Elíza Newman hefur skrifað undir höfundaréttarsamning við bandaríska plötufyrirtækið Wixen Music.

Fyrirtækið var stofnað fyrir um 30 árum síðan og á meðal tónlistarmanna sem unnið hafa með útgáfunni eru Neil Young, The Black Keys, Audioslave, Rage against the Machine, Weezer og Tom Petty.

Munu Wixen einbeita sér að því að koma tónlist Elízu á framfæri í ýmsum miðlum og má þar nefna að lagið I Wonder mun hljóma í ástralska sjónvarpsþættinum Winners and Losers bráðlega. Þátturinn er sýndur víða um heim.

Elíza er um þessar mundir að klára upptökur af þriðju plötu sinni sem mun koma út á Íslandi í haust.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.