Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hafa sett inn færslu á Twitter um dauða ömmu sinnar, tróð Rihanna upp á tónleikum í Borlänge í Svíþjóð og þeir fóru ekki vel. Aðdáendur hennar sem höfðu ekki grun um hvaða vanda hún átti við að etja í einkalífinu sögðu frá því að hún væri í svo mikilli vímu að hún gæti varla staðið í fæturna.
Rihanna var 45 mínútum of sein á tónleikana og eftir að hún hóf flutning sinn stóðu áhorfendur agndofa. Rihanna var of lyfjuð til að syngja og margir áhorfenda halda því fram að hún hafi aðeins hreyft varirnar meðan tónlistin var flutt af bandi. Hreyfingum hennar var lýst sem slyttislegum og augnráðinu fljótandi.
Hún virtist enn fremur ekki átta sig á því hvar hún var stödd í heiminum og flutti lag til heiðurs fórnarlömbum Anders Breivik. Henni til varnar þá var hún stödd í Osló nokkrum dögum áður.
En dæmi nú hver fyrir sig því hér er myndband frá tónleikunum sem hún hélt.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi