Ekkert varð af miklum afmælisfagnaði bandaríska leikarans Tom Cruise vegna fimmtugsafmælis hans. Cruise hafði ráðgert að fagna með vinum og vandamönnum í New York en ákvað þess í stað að vera með börnum sínum, Connor og Isabella, í Los Angeles.
Tom er sagður niðurbrotinn í kjölfar þess að eiginkona hans Katie Holmes hefur óskað eftir skilnaði. Tom lauk í vikunni tökum á myndinni Oblivion hér á landi en dagurinn sem átti að fara undir afmælisfögnuðinn reyndist afar dapur, að því er breska dagblaðið The Daily Mail greinir frá á vef sínum.
„Hann ætlaði sér að halda upp á afmælið með Katie og Suri í New York,“ segir heimildarmaður. „Síðan ætluðu þau að fljúga til Los Angeles þar sem ljúka átti tökum á Oblivion.“
Tom er sagður tala við Suri dóttur sína nokkrum sinnum á dag í gegnum síma.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi