Eltu Tom Cruise á bílum í Reykjavík

Skipti um bíl í Skeifunni og komst undan með klækjum

Erlendir blaðamenn og ljósmyndarar veittu Tom Cruise eftirför á bílum á laugardag þegar ekið var með hann um borgina. Lífverðir og ökumenn Cruise beittu ýmsum klækjabrögðum til að reyna að losna við pressuna. Mikil eftirspurn er eftir myndum af leikaranum, sérstaklega eftir að eiginkona hans, Katie Holmes, sótti um skilnað frá honum fyrir bandarískum dómstólum í síðustu viku.

Eltingaleikur í Reykjavík

Heimildir DV herma að ekið hafi verið frá Hilton hótelinu við Suðurlandsbraut í Reykjavík og krókaleið ekin niður í Skeifu þar sem skipt var um bíl. Þaðan var svo keyrt inn í Vogahverfið í Reykjavík með báða bílana og blaðamennina í humátt á eftir þar sem silfurlitaður Toyota Land Cruiser-jeppi var stöðvaður í Skeiðarvogi, fyrir utan Menntaskólann við Sund, þar sem ekki var hægt að komast framhjá. Heimildarmaður DV segir að lífvörður Cruise hafi sagt að bíllinn væri bilaður og að þess vegna hafi hann stöðvað en við það komst svört Cadillac Escalade-jeppabifreið leikarans undan.

Ekki liggur fyrir hvaða fjölmiðlar það voru sem eltu Cruise en fjölmiðlar frá Bretlandi, Skandinavíu og Bandaríkjunum hafa setið um leikarann síðustu vikurnar hér á landi.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.