Söngvarinn Chris Brown skemmti sér á Gotha Nightclub í Cannes í Frakklandi fyrir helgi en hann var þar ásamt kærustu sinni, Karrueche Tran, og fjölmörgum vinum. Brown lét það þó ekki stoppa sig í að dansa ögrandi dansa við aðrar stúlkur á staðnum og hreinlega káfa á nokkrum þeirra eins og meðfylgjandi myndir sína.
Mörgum gæti þótt þolinmæði Tran undarlega mikil en í síðustu viku var einnig greint frá því að Brown hefði eytt tíma um borð í snekkju fyrrverandi kærustu sinnar, söngkonunnar Rihönnu sem hann var dæmdur fyrir að beita grófu ofbeldi árið 2009.
Hinn 23 ára gamli Chris var ber að ofan og löðursveittur á dansgólfinu á Gotha á meðan hann káfaði á afturenda nokkurra stúlkna. Hann dansaði einnig við hótelerfingjann Paris Hilton sem skemmti sér með hópnum á staðnum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013