Af öllum þeim sögusögnum um bandaríska leikarann Tom Cruise þá fer ein þeirra fremur hátt í kjölfar skilnaðar hans og leikkonunnar Katie Holmes.
Árið 2005, fjórum árum eftir að hafa skilið við leikkonuna Nicole Kidman, nálgaðist þessi stærsta kvikmyndastjarna heimsins nokkrar leikkonur í Hollywood og bauð þeim fimm ára samning um hjónaband. Á meðal þeirra eru sagðar leikkonurnar Sofia Vergara, sem er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í Modern Family, Scarlett Johannsson og Katie Holmes, sem varð þriðja eiginkona Tom Cruise.
Lofað frægð og frama
Í skiptum fyrir að giftast leikaranum var Holmes lofað að leikferill hennar næði nýjum hæðum auk peninga. Þá átti hún að hljóta „bónus“ ef hún myndi fæða Cruise barn. Tom fengi í staðinn barn auk þess sem almenningsálitið á honum myndi lagast með einhverju móti. Þá átti hjónabandið einnig að afsanna sögusagnir um samkynhneigð hans.
Núna, tæpum fimm árum eftir að hafa gifts Crusie, hafa þessar sögusagnir fengið byr undir báða vængi.
Nokkrar prófaðar
„Þessi saga er væntanlega byggð á misskilningi,“ segir Tony Ortega, ritstjóri Village Voice, í tölvupósti til bandaríska fjölmiðilsins The Huffington Post. Ortega heldur því fram Vísindakirkjan, sem Cruise tilheyrir, hafi nálgast nokkrar ungar konur og þær „prófaðar“ áður en Katie Holmes var valin. Voru þær látnar skrifa undir samkomulag áður en þær fóru á stefnumót með Cruise, sem er sagt staðlað verklag innan Vísindakirkjunnar.
Ortega hefur sérhæft sig í umfjöllun um Vísindakirkjuna til fjölda ára en hann hefur tekið fjölda viðtala við fólk um starfið þar en Tom Cruise er meðal æðstu manna í Vísindakirkjunni.
Fannst kirkjan kæfandi
Í grein sem birtist á slúðursíðunni Celebuzz er Cruise sagður hafa verið heillaður af leikkonunni Sofiu Vergara áður en hann kvæntist Holmes. Vergara er þó sögð hafa hörfað frá honum eftir heimsókn í Stjörnumiðstöð kirkjunnar. Er hún sögð hafa fundist starfið vera kæfandi.
Cruise kynntist Scarlett Johannsson þegar hún mætti í prufu fyrir þriðju myndina um leyniþjónustumanninn Ethan Hunt, en myndirnar nefnast Mission Impossible. Johannsson fékk hlutverkið en hætti við eftir að Cruise reyndi að neyða bókmenntum Vísindakirkjunnar á hana.
Ólíkt öðrum leikkonum þá virtist Katie Holmes móttækileg fyrir boðskap Vísindakirkjunnar og starfinu innan hennar.
Fullt forræði afsannar kenninguna
Þrátt fyrir allar þessar sögusagnir þá er Tom Cruise sagður hafa verið afar ástfanginn af Holmes. Það sem gerir þessar sögusagnir um samkomulag þeirra á milli er að Holmes hefur farið fram á fullt forræði yfir sex ára gamalli dóttur þeirra Suri Cruise en hefði verið samkomulag á milli hjónanna þá hefði hún líklegast aldrei geta farið fram á það.

Hemmi Gunn fallinn frá