Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
22:27 › 29. júlí 2012
Hvað geta menn gert til þess að drepa tíma á milli keppna á Ólympíuleikunum sem fara fram í London í Bretlandi? Þýskir hjólreiðakappar tóku upp á því að girða niður um sig og bera saman lærvöðvana. Það var síðastliðinn fimmtudag sem ný-sjálenski hjólreiðakappinn Greg Henderson birti mynd á samfélagssíðunni Twitter af tveimur þýskum hjólreiðaköppum sem virtust hafa þjálfað þessa vöðva vel.
Sá sem er vinstra megin á myndinni er þrítugi hjólreiðakappinn André Greipel en hægra meginn er Robert Förstemann.
Förstemann fór með sigur af hólmi í þessum samanburði en Greipel virtist ekki sár eftir að hafa tapað því hann ákvað að birta sjálfur myndina á Twitter þrátt fyrir að hafa beðið lægri hlut.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi