Prince, Paris og Blanket búa við ótryggar aðstæður

Heimiliserjur í Jacksonfjölskyldunni

Lögregla var kölluð til að heimili Jackson fjölskyldunnar á mánudagseftirmiðdag vegna tilkynninga um heimiliserjur. Erjurnar voru á milli systkinanna Jermaine og Janet Jackson og áttu sér stað í innkeyrslunni að ættaróðali Jacksonfjölskyldunnar í Calabasas, Kaliforníu. Engin ákæra var gefin út vegna málsins en slúðursíðan TMZ birti myndir af því þegar lögregla skipti sér af erjunum. Deila systkinanna snýr að börnum Michaels en dánarbú hans undirbýr forsjármál.

Börn Michael Jacskon, Prince, Paris og Blanket, búa á ættaróðalinu með ömmu sinni Katherine en nýverið varð það fréttnæmt að hennar var saknað um vikutíma. Hún fannst að lokum í Arizona en barnabörnin höfðu þá verið án eftirlits allan tímann og Janet og Jermaine hafa haft áhyggjur af stöðu barnanna.

„Já, amma mín er horfin, ég hef ekki talað við hana í heila viku og ég vil að hún komi heim núna,“ sagði Paris, á Twitter síðu sinni og bað um hluttekningu vina og aðdáenda.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.