„Þennan mann ætla ég að kyssa það sem eftir er“

Var ættleidd við fæðingu

Unnusta Herberts Guðmundssonar söngvara, Lísa Dögg Helgadóttir, er í opinskáu viðtal í nýjasta tölublaði Vikunnar. Hún segir frá því að hún hafi verið ættleidd, átt yndislega æsku og alist upp í Breiðholtinu.

Lísa Dögg segir að hún hafi, þrátt fyrir frábæra æsku, verið erfiður unglingur. Hún segist hafa brotið hárbursta og verið reið og ill og ekkert kunnað á tilfinningar sínar. Orsökina segir hún hafa verið atvik sem henti hana í æsku en hún vilji ekki tjá sig meira um það.

„Ég hef aldrei viljað læra um það sem er að gerast fyrir framan mig. Mestan áhuga hef ég alltaf haft á himingeiminum og þessu óendanlega“ segir Lísa en hún er staðráðin í að læra stjarneðlisfræði í Bandaríkjunum og hefur nú þegar hafið það nám í fjarnámi.

Um kynni hennar og Herberts segir Lísa að þau hafi byrjað að spjalla á Facebook og á endanum ákveðið að hittast. Hún segir að fyrsti kossinn hafi verið einstakur og hún hafi hugsað „þennan mann ætla ég að kyssa það sem eftir er.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.