Haukur Heiðar, söngvari hljómsveitarinnar Diktu, fagnar stórafmæli um þessar mundir og í tilefni af því hafði blaðamaður DV samband við hann.
„Ég er alveg örugglega fæddur á Landspítalanum en alinn upp á Álftanesi. Það var rosalega gott að alast þar upp, mjög rólegt, hestar og rollur alls staðar og mjög fá hús miðað við hvernig þetta er í dag. Þegar ég var orðinn stálpaður fórum við krakkarnir að hjóla til Hafnarfjarðar sem tók 40 mínútur og þá keyptum við okkur eitthvað voða fínt eins og til dæmis Michael Jackson-hálsmen.“
Með strætó í Garðabæ
Haukur Heiðar var fyrstu ár grunnskólagöngu sinnar á Álftanesi. „Á þessum tíma var bara kennt upp í 7. bekk í Álftanesskóla og þá fór ég að taka strætó til Garðabæjar og fór í Garðaskóla í 8. til 10. bekk. Þar kynntist ég strákunum í Diktu en þeir eru einmitt allir fæddir og uppaldir í Garðabæ,“ segir Haukur. „Það voru smá viðbrigði að skipta um skóla, Garðaskóli var miklu stærri en Álftanesskóli, en þetta var samt bara mjög fínt.“
Mætti á æfingu með Diktu
Eftir grunnskólann fór Haukur Heiðar í Menntaskólann við Hamrahlíð. „Það var á fyrsta árinu mínu í menntaskóla sem ég fór að spila með Diktu en Skúli bassaleikari var í Verzlunarskóla Íslands á þessum tíma og við vorum alltaf samferða í strætó á leið heim eftir skóla. Einn daginn bauð hann mér að mæta á æfingu hjá þeim. Ég hafði verið í einhverri unglingahljómsveit á þessum tíma og eitthvað verið að syngja en gat samt ekki mikið sungið þá,“ segir Haukur og hlær. „En ég mætti á æfinguna með gítarinn minn og gaulaði eitthvað.“
Nafnarnir 100 ára
Árið 2002 útskrifaðist Haukur Heiðar úr MH. „Ég ætlaði að taka mér ársleyfi en ákvað að drífa mig bara beint í klásus í læknadeildinni því þetta var seinasta árið sem boðið var upp á klásus. Eftir það var það lagt af og í staðinn tóku þeir upp inntökupróf. Klásus fór þannig fram að við lærðum ákveðin fög, eins og til dæmis fósturfræði, í þrjá mánuði og tókum svo próf upp úr því og þeir sem voru efstir komust áfram. Ég ætlaði alltaf að verða læknir og mér er sagt að ég hafi sagt þegar ég var 5 ára gamall að ég ætlaði að verða læknir og spilamaður eins og pabbi,“ en Haukur Heiðar er nafni föður síns Hauks Heiðars Ingólfssonar sem er læknir og hefur meðal annars spilað með Ómari Ragnarssyni í áraraðir. „Pabbi og mamma verða einmitt sjötug í ár svo við nafnarnir verðum samtals 100 ára í ár. Pabbi er að fara að gefa út plötu í haust og ég syng eitt lag á henni með honum.“
Tónleikaferð í Evrópu
Dikta er ein af vinsælustu hljómsveitum Íslands og skaut hratt og örugglega upp á stjörnuhimininn árið 2009. Aðspurður hvenær hann hafi fundið fyrir þessum vinsældum segir Haukur: „Fyrsta svoleiðis augnablikið var þegar við náðum að fylla Nasa við Austurvöll á útgáfutónleikunum okkar 2009. Þá höfðum við aldrei haldið okkar eigin tónleika á svona stórum stað en höfðum verið að fylla minni staði svo við ákváðum að stækka við okkur á útgáfutónleikunum fyrir plötuna Get It Together og það gekk svona líka vel.“
Dikta er ekki mikið að spila á Íslandi þessa dagana en samt er nóg fram undan. „Platan okkar Trust Me kemur út í Evrópu í haust og við munum fylgja því eftir og fara í tónleikaferð til Þýskalands og víðar um Evrópu.“
Fyrsta launaða sumarfríið
Haukur er búinn að taka sumarfrí þetta árið. „Þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég hef tekið launað sumarfrí, sem var mjög gaman. Ég tók fjórar vikur í júní og júlí því ég var að fjölga mannkyninu, við eignuðumst strák 3. júlí síðastliðinn. Það er toppurinn á tilverunni. Ég mun eyða afmælisdeginum sjálfum í vinnu og kósíheit með konu og börnum en svo munum við halda smá veislu daginn eftir fyrir nánustu vini og ættingja.
Foreldrar:
Haukur Heiðar Ingólfsson f. 5.8. 1942
Sveinrós Sveinbjarnardóttir f. 14.6.1942
Systkin:
Halldór Hauksson f. 13.2. 1968
Margrét Hauksdóttir f. 15.6. 1970
Inga Dóra Hauksdóttir f. 23.6. 1977
Maki:
Guðný Kjartansdóttir, f. 21.11. 1983
Börn:
Birna Guðlaugsdóttir, f. 17.4. 2006
Drengur Hauksson, f. 3.7. 2012
ATHUGA: Í helgarblaði DV er farið rangt með það hverjir foreldrar Hauks eru. Þar er um mistök að ræða og er beðist velvirðingar á þeim.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013