„Ég var atvinnulaus og allt í rugli,“ segir Selma Björnsdóttir sem er í viðtali í nýjasta tölublaði Nýs Lífs og segir frá þeim erfiða tíma þegar hún skildi við fyrrverandi eiginmann sinn, Rúnar Frey Gíslason, leikara.
Selma var í leikstjórnarnámi í Bristol þegar ákvörðun var tekin um skilnað. Til stóð að Rúnar Freyr, kæmi á eftir henni til Bretlands með börnin, þar sem fjölskyldan ætlaði að búa í eitt ár.
„Ég var nýbyrjuð í skólanum þegar líf mitt tók skyndilega u-beygju og ég gat ekki haldið áfram í náminu,“ segir Selma í viðtalinu en hún fluttist heim til barna sinna á miðju leikári.
„En neyðin kennir naktri konu að spinna,“ segir Selma sem segist hafa skellt í kántríplötu og bjargað málunum.
Hún segist reynslunni ríkari eftir skilnaðinn. „Allt er breytt og ég verð aldrei sama manneskjan og fyrir skilnað,“ segir Selma sem segist vera miklu sterkari og meðvitaðri kona eftir áfallið.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013