„Gunnar er í Krossinum, ekki ég. Það var ekki pláss fyrir mig þar. Fyrrverandi konan hans er komin aftur, hún byggði þessa kirkju og ég þarf ekkert að vera þar. Ég fer alltaf í kirkju á sunnudögum þá helst í Grensáskirkju og í Krossinn, en ég er bara rosalega „líbó“ með þetta,“ segir Jónína Benediktsdóttir um brotthvarf sitt úr trúfélaginu Krossinum í viðtali við tímaritið Séð og Heyrt.
DV hefur fjallað ítarlega um ósætti og valdabaráttu innan Krossins að undanförnu. Tvær valdablokkir börðust um völd innan safnaðarins áður en kosið var til stjórnar innan Krossins á dögunum; Gunnar Þorsteinsson og Ingibjörg Guðnadóttir, fyrrverandi eiginkona Gunnars.
Ingibjörg, sem dvalið hefur langdvölum í Bandaríkjunum, flutti til Íslands sumarið 2011 og er byrjuð að láta að sér kveða í safnaðarstarfi Krossins svo um munar. Svo fór, að maðurinn sem í tugi ára hefur verið helsta vítamínsprauta safnaðarstarfsins og andlit Krossins, hlaut ekki brautargengi. Jónína Benediktsdóttir, eiginkona Gunnars, var einnig viðstödd og beindust spjót Ingibjargar ekki síst gegn henni. Jónína, sem skráði sig úr Krossinum á dögunum, er af mörgum talin ein helsta ástæða þess að ástandið í Krossinum er jafn slæmt og raun ber vitni. Þetta staðfesta heimildarmenn DV. Að fundi loknum yfirgáfu Gunnar og Jónína fundinn í fússi, og hafa ekki mætt á viðburði Krossins síðan.
Lofgjörðarsamkomur, ekki trúfélag
Í viðtalinu greinir Jónina einnig frá því að hún og Gunnar séu ekki að stofna trúfélag heldur ætli að standa fyrir tónlistarviðburðum í Austurbæ á sunnudögum. „Við ætlum að vera með í Austurbæ á sunnudögum svona lofgerðarsamkomu og ætlum gjörsamlega að lyfta þakinu af Austurbæ með tónlist og gleði segir Jónina, en nánar er rætt við hana í Séð og Heyrt í dag.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013