Sýna mynd af Stewart að halda framhjá Pattinson

„Þetta voru mistök og dómgreindarbrestur“

Bandaríska slúðurpressan logar í dag en þar hermir tímaritið US Weekly að leikkonan Kristen Stewart hafi haldið fram hjá kærasta sínum og samleikara, Robert Pattinson, með leikstjóranum Rupert Sanders. Sanders og Stewart unnu saman að kvikmyndinni Show White and the Huntsman. Það flækir málin enn meira að Sanders er giftur fjölskyldufaðir.

Mynd af Stewart og Sanders er á forsíðu tímartisins, en þar sjást þau vera nokkuð innileg. „Þetta voru mistök og dómgreindarbrestur. En hún átti ekki í ástarsambandi við Rupert. Hún ætlaði sér ekki að særa neinn. Hún er góð manneskja sem tók ranga ákvörðun.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.