Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
14:39 › 24. júlí 2012
Leikkonan Jennifer Connelly og eiginmaður hennar, Da Vinci Code leikarinn, Paul Bettany eru ásamt börnum þeirra að spóka sig hér á landi og sást til þeirra í göngutúr á Laugaveginum núna fyrir stuttu. Connelly kom til Íslands á fimmtudaginn í síðustu viku, en virðist hafa tekist að fara huldu höfði í Reykjavík.
Connelly er hér á landi við tökur á myndinni Noah en í henni leika einnig leikararnir Russell Crowe auk Anthony Hopkins og Emmu Watson. Russell Crowe hefur ekki látið fara eins lítið fyrir sér og Connelly, en hann hefur sést á hjóli um Reykjavík, við æfingar í Mjölni auk þess sem hann hefur verið tíður gestur veitingastaða Reykjavíkur.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum