Stjúpsonur Ushers látinn

Tekinn úr öndunarvél í morgun

Kyle Glover, 11 ára gamall stjúpsonur poppstjörnunnar Usher, lést í morgun. Glover hafði verið úrskurðaður heiladauður fyrr í mánuðinum en hann lenti í alvarlegu slysi þegar hann varð fyrir „sjóketti“, eða Jet-ski. Kyle var sonur fyrrverandi eiginkonu Ushers, Tameka Foster.

Læknar tóku Glover úr öndunarvél í morgun eftir að þeir komust að þeirri niðurstöðu að áverkarnir væru of alvarlegir til að vinna bug á. Samkvæmt heimildum TMZ var mjög erfitt fyrir móður hans Tameku Foster að taka þá ákvörðun, og er hún yfirbuguð af harmi.

Kyle var ásamt vinkonu sinni á uppblásinni blöðru á Lanier-vatni í Georgíu-fylki þegar keyrt var á þau á vatninu. Samkvæmt lögreglu var það vinur fjölskyldu þeirra sem missti stjórn á sjókettinum og keyrði á þau.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.