Russell Crowe á Búllunni

Fékk sér tvo hamborgara

Stórleikarinn Russell Crowe kíkti á Hamborgarabúlluna á Geirsgötu um áttaleytið í kvöld. Hann hitti hóp af fólki sem var þar fyrir en Crowe mætti sjálfur með myndarlegu fylgdarliði.

Crowe fékk sér svokallað Tilboð aldarinnar. Hann var meira að segja svo sáttur með matinn að hann fékk sér annan hamborgara í kjölfarið. Að sögn grillmeistara þakkaði Crowe mjög kurteislega fyrir sig áður en hann yfirgaf svæðið og hrósaði hann starfsmönnum fyrir vel eldaðan mat.

Afgreiðslumaður þurfti ekki að spyrja til nafns enda er Crowe mjög þekkt andlit.

Crowe er staddur á Íslandi við tökur á kvikmyndinni Noah eftir leikstjórann Darren Aronofsky.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.