Leiklistin brú yfir feimnina

Mila Kunis flutti til Bandaríkjanna sjö ára

Leikkonan og þokkagyðjan Mila Kunis hóf ­leiklistarferil sinn vegna þess að hún var svo feimin í æsku. Frá þessu segir leikkonan í viðtali við tímaritið Interview. Mila er fædd í Úkraínu en hún fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna þegar hún var sjö ára. Stuttu seinna skráðu foreldrar Milu hana í leiklistarskóla til að hjálpa að sigrast á feimninni.

Níu ára var hún farin að starfa við leiklist en hún fékk stóra ­tækifærið aðeins fjórtán ára þegar hún fékk hlutverk í þáttunum That 70´s Show ásamt Ashton Kutcher, Topher Grace og fleirum. Mila var yngst af krökkunum en sló fljótt í gegn. Hún vakti einnig mikla athygli vegna sambands síns við barnastjörnuna Macaulay Culkin úr Home Alone-myndunum.

Leikferill Milu hefur heldur betur farið á flug eftir að hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í myndinni Black Swan en hún er í dag ein af vinsælustu leikkonum Hollywood.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.