Jóhannes Kr.: „Ég féll eftir að Sigrún dó“

„Ég stunda mína fundi og vinnu í AA og hefur aldrei liðið betur sem edrú manneskju“

Jóhannes Kr. Kristjánsson segir það blákalda staðreynd að fullorðnir karlmenn noti ungar stúlkur í hörðum heimi fíkniefnanna. Hann segir dóttur sína hafa verið eina af þessum stúlkum. Við gerð bókar um dóttur sína kafar hann nú dýpra en nokkru sinni fyrr niður í myrkan heim eiturlyfjaneyslu. Nauðganir, ofbeldi og kúgun eru daglegt brauð hjá unglingsstúlkum en Jóhannes gagnrýnir kerfið harkalega fyrir viðbragðs- og ráðaleysi. Jóhannes þekkir alkóhólisma af eigin raun og féll eftir fráfall dóttur sinnar en reis upp aftur.

Féll en reis upp aftur

Eins og gefur að skilja er ekki auðvelt fyrir Jóhannes að feta þessa slóð. Að skoða braut dóttur sinnar og annarra stúlkna og drengja sem eru eða voru í hennar sporum. „Það er mjög erfitt og það á enginn að þurfa að vera í þessum sporum. Það á enginn að þurfa að missa barnið sitt en það munu alltaf einhverjir lenda í því. Þá er ekkert erfiðara til. Það er ekkert erfiðara en að missa barnið sitt. Það er í raun ekki hægt að skilja það nema að upplifa það.“

Jóhannes þekkir alkóhólisma af eigin raun en eftir að dóttir hans lést missti hann flugið. „Ég féll eftir að Sigrún dó. Ég þekki alkóhólisma vel, ég er alkóhólisti og auðveldasta leiðin hefði verið að drekka sig fullan og reyna að gleyma þessu. En það er engin lausn fólgin í því. Ég fór í meðferð og tók mig aftur á. Ég stunda mína fundi og vinnu í AA og hefur aldrei liðið betur sem edrú manneskju. En þetta er vinna eins og allt annað sem þarf að halda við.

Jóhannes segir að þessi upplifun, að missa dóttur sína á þennan hátt og að kafa í þennan heim í kjölfarið, hafi breytt sér mikið. „Ég veit ekki hvort ég sé búinn að vinna úr þessari sorg. Það getur vel verið að hún komi svona hægt og rólega. Ég verð oft alveg gífurlega reiður yfir því sem gerðist. Ég hugsa um Sigrúnu Mjöll oft á dag, alla daga. Á örugglega eftir að gera það allt mitt líf.

Það róar mig að fara að leiðinu hennar. Það hefur líka róað mig að segja sögu hennar og fá öll þessi viðbrögð frá fólki. Að vita að saga hennar hefur hjálpað fólki til þess að rétta úr kútnum, taka á sínum málum og sameina fjölskyldur. Það hefur líka hjálpað mér mikið við úrvinnsluna á þessu að hafa farið í gegnum meðferð á Vogi.“

Jóhannes vill nota tækifærið og óska eftir ábendingum og komast í samband við fólk sem hefur sögu að segja úr heimi læknadóps. „Ég vil fá upplýsingar um lækna sem eru duglegir að ávísa lyfjum, sölumenn á götunni sem selja læknadópið og komast í samband við fólk sem tengist þessum heimi, annaðhvort beint eða óbeint,“ segir hann og bendir á vefsíðu sína johanneskr.is þar sem hægt er að hafa samband við hann.

Nánar er rætt við Jóhannes í helgarblaði DV . Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.