Tímaritið Séð og heyrt greinir frá því að athafnamaðurinn Hannes Smárason sé skilinn við Unni Sigurðardóttur. Er Unnur sögð búsett á Íslandi en Hannes býr ytra. Hannes tók saman við Unni á meðan hún starfaði fyrir athafnamanninn Jón Ásgeir Jóhannesson en áður var Hannes tengdasonur Jóns Helga Guðmundssonar, oftast kenndur við Byko.
Höfðu þeir verið viðskiptafélagar um tíma en samband þeirra raskaðist eftirminnilega eftir að Hannes skildi við dóttur Jóns Helga og tók saman við einkaritara Jóns Ásgeirs.
Hannes fór mikinn á árunum fyrir hrun en hann steig upp úr forstjórastóli FL Group eftir að félagið hafði tapað 67 milljörðum króna árið 2007 og bættust 48 milljarðar við það tap á fyrstu þremur mánuðum ársins 2008.
Það jafngildir 730 milljónum króna á dag, hvern einasta dag sem skrifstofan var opin þessa þrjá mánuði.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013