Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:50 › 17. júlí 2012
Rétt fyrir fimm í morgun mun stórleikarinn Russell Crowe hafa verið á fótum í Reykjavík. Hann sendi aðdáendum sínum skilaboð á Twitter.
„Góðan daginn Reykjavík... Ég held að minnstu að það sé dagur... lítur alveg eins út og nóttin,“ sagði hann ringlaður og nýkominn á norðurslóðir.
Þetta er eitthvað sem hann hefur ekki upplifað áður: „Held að það hafi ekki orðið dimmt yfir höfuð. Þetta er nýtt fyrir mér, með miðnætursólina.“
Russell er staddur hér á landi við tökur á kvikmyndinni Noah. Hann er hér ásamt stórleikurum á borð við Anthony Hopkins, Emmu Watson og Jennifer Connely. Darren Aronofsky, framleiðandi kvikmyndarinnar, lagði af stað til Íslands í gær.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013