Russell Crowe var að lenda í Reykjavík

Verður hér næstu fjórar vikurnar

Nýsjálenski stórleikarinn Russell Crowe er kominn til Reykjavíkur en hann lenti á Reykjavíkurflugvelli nú fyrir stundu. Hann er hingað kominn til landsins ásamt fjölskyldu sinni. Leikarinn var ekki fyrr lentur en hann hafði tilkynnt komu sína hingað til lands á Twitter.

Crowe dvelur hér næstu fjórar vikurnar við tökur á kvikmyndinni Noah, sem fjallar einmitt um örkina hans Nóa. Crowe er ekki eini frægi leikarinn sem er væntanlegur hingað til lands vegna myndarinnar en á næstunni má búast við Anthony Hopkins og Emmu Watson sem leika á móti Crowe.

Það er sannkallaður stjörnufans hér á landi um þessar mundir en Ben Stiller er hér á landi og hefur sést á röltinu í Reykjavík. Hann snæddi sem dæmi má nefna á Fiskmarkaðinum í hádeginu í dag.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.