Sjónvarpskarakterinn Johnny Naz snýr til baka í íslenskt sjónvarp í september næstkomandi. „Sem sérstakur talsmaður Johnny og umboðsmaður þá er hann með mjög miklar hugmyndir og það er þörf á þeim,“ segir Erpur Eyvindarson, maðurinn á bak við Johnny.
„Hann er með lausnir á öllu. Það er gott innlegg og alveg nauðsynlegt.“
Erpur segir að núna hafi einfaldlega verið rétti tíminn til að snúa til baka. Johnny verður með sex þátta sjónvarpsþáttaröð á Skjá Einum og hefjast sýningar í lok september.
Þættirnir Íslensk kjötsúpa og Johnny International voru til sýninga í árdaga Skjás Eins sem fagnar þrettán ára afmæli í ár. Í þáttunum fór karakterinn Johnny um landið og tók viðtöl við misvel þekkta Íslendinga. Í þáttunum sem nú fara í sýningu mun karakterinn koma með hugmyndir að lausnum á vandamálum Íslands. Erpur segir að meðal annars verði litið til þeirra kosta sem fylgja hnattrænni hlýnun fyrir Íslendinga eins og hann orðar það. „Hann sér alla þessa frábæru möguleika sem felast í gróðurhúsaáhrifunum,“ segir Erpur. „Aðallega að það sé sól og þá fer fólk ásjálfrátt úr fötunum og þá þarf fólk ósjálfrátt á drykk að halda. Það eru aðstæður sem Johnny líður vel í og metur að restin af Íslendingum líði eins.“
Erpur segir að inntak þáttanna verði með svipuðu sniði og fyrri þáttaraðir með Johnny. „Hann talar við lið sem getur leiðbeint Íslandi, hann tekur það besta frá stöðum alls staðar í heiminum til að búa til þetta nýja Íbízaland, nýtt Ísland sem er byggt á grunni Ibiza,“ segir Erpur og vísar í sólarparadísina Ibiza í Miðjarðarhafi.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013