Jagger í sárindum eftir Angelinu Jolie

Algjörlega heillaður af leikkonunni

Ritari ævisögu söngvara bresku sveitarinnar The Rolling Stones hefur greint frá því að Mick Jagger hafi sofið hjá rúmlega 4000 konum. Segir ritarinn, Chris Andersen, þessa tölu vera varlega áætlaða en á meðal bólfélaga Jaggers eru nokkrir karlmenn, þar á meðal tónlistarmaðurinn David Bowie.

Það má því áætla að Jagger hafi verið við ófáar ungar konur kenndur, en ein kom þó söngvaranum fjöruga nokkuð á óvart.

Árið 1997 hafði eiginkona Jaggers, Jerry Hall, nýverið eignast barn þegar Jagger flaug til New York til að taka upp myndband við lagið Anybody Seen My Baby. Þar náði afar fögur kona að fanga augu hans en hún hafði verið ráðin til að leika fatafellu í myndbandinu. Leikkonan heitir Angelina Jolie sem heillaði Jagger með fögru útliti og afar svæsinni framkomu. Hún var þá gift breska leikaranum Johnny Lee Miller en átti þá í leynilegu ástarsambandi við leikarann Timothy Hutton.

Jagger er sagður hafa hringt látlaust í Jolie þangað til hún gaf eftir og hitti hann í Flórída. Jagger náði þó ekki að heilla Jolie að því er fram kemur í ævisögu hans. Á vef breska dagblaðsins The Daily Mail er greint frá því að Jagger hafi hringt látlaust í Jolie eftir helgina í Flórída. Vinkona móður Jolie, Laura Taines, segir Jagger hafa verið kjökrandi í símann þegar hann grátbað Jolie um að hitta sig aftur.

Hann náði að sannfæra Jolie um að hitta sig aftur og héldu þau sambandi næstu tvö árin.

Greint er frá því að Jagger hafi verið óður í Jolie. Þegar hún neitaði til að mynda að fara með honum á tónleikaferðalag til Suður-Ameríku þurfti hann að leita huggunar hjá Luciana Morad, sem varð ólétt eftir ástarfund þeirra.

Fram kemur í ævisögu Jaggers að hann hafi leitað sér hjálpar vegna kynlífsfíknar en endað með að sofa hjá ráðgjafanum sem átti að hjálpa honum að yfirbuga fíkn sína.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.