Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
17:25 › 15. júlí 2012
Stórleikarinn Ben Stiller er staddur á Íslandi. Til hans sást í gærkvöldi er hann tjúttaði á skemmtistaðnum Vegamótum í miðbæ Reykjavíkur. Að sögn lét Stiller aka sér beina leið á Vegamót er hann lenti á Íslandi.
Ekki er vitað af hvaða ástæðu Ben Stiller er hér á landi. Síðasta haust dvaldist hann einnig hér og vann þá að endurgerð kvikmyndarinnar The Secret Life of Walter Mitty sem væntanleg er á næsta ári. Ben Stiller leikur aðalhlutverkið í þeirri mynd auk þess að leikstýra.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013