Ben Stiller dvelur í Garði

Leigja gamalt björgunarsveitarhús

Samkvæmt heimildum DV dvelur stjörnuleikarinn Ben Stiller í Garði á Reykjanesi. Þar hefur Stiller komið sér fyrir ásamt fylgdarliði sínu í gömlu björgunarsveitarhúsi sem nefnt er Þorsteinsbúð. Fyrir það voru greiddar 3 milljónir króna samkvæmt heimildum DV.

Fregnir herma að tökur hafi farið fram á bryggjunni í Garði í dag og haldi áfram á morgun.

Eins og greint var frá á DV fyrr í dag varði Ben Stiller laugardagskvöldinu á Vegamótum í góðra vina hópi.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.