Kristrún um Svein Andra: „Mér er slétt sama hjá hverjum hann leggst“

Segist bera tilfinningar til annars manns

Kristrún Ösp Barkardóttir er í stóru viðtali í Barnablaði Vikunnar sem kom út í þessari viku og þar ræðir hún móðurhlutverkið og allt sem því fylgir. Þar segir hún frá því að hún hafi snúið aftur til heimahaganna, Akureyrar, til að vera nálægt fjölskyldu sinni og æskuvinum. Kristrún hefur stundað fjarnám í fæðingarorlofinu og stefnir á að fara í háskólanám.

Kristrún er mjög einlæg í viðtalinu við Vikuna og segir frá því að fæðingin hafi gengið vel fyrir sig og móðir hennar og eldri systir hafi báðar verið viðstaddar.

Um leið og litli drengurinn kom í heiminn fengu báðir mennirnir sem Kristrún taldi að gætu verið feður barnsins bréf og voru þeir boðaðir til blóðprufu. Mun það hafa tekið um fimm vikur að komast að hinu rétta faðerni, en eins og flestir vita er lögfræðingurinn Sveinn Andri Sveinsson faðir barnsins. Drengurinn hlaut svo nafnið Baltasar Börkur.

Kristrún segir að hinn maðurinn, sem kom til greina sem faðir Baltasars hafi orðið hundfúll því hann hafi alveg verið opinn fyrir föðurhlutverkinu og vonaði að drengurinn væri sonur sinn.

Kristrún greinir einnig frá því að hún og Sveinn Andri hafi verið saman í fjóra mánuði og stunduðu óvarið kynlíf.

Hún segir að hún vilji gifta sig áður en hún eignist annað barn en greinir einnig frá því að hún beri tilfinningar til ákveðins manns en sé ekkert að flýta sér og þetta gerist bara þegar þau séu tilbúin.

Sögusagnir um að Sveinn Andri sé að fara að eignast annað barn með mjög ungri stúlku hafa verið á kreiki og segir Kristrún Ösp: „Mér er slétt sama hjá hverjum hann leggst en kannski leiðinlegra ef Baltasar ætti systkini út um allar trissur.“ Hún segir þó einnig að hún og Sveinn Andri séu sátt í dag og þau komi vel fram við hvort annað.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.