Fimmtíu ár frá fyrstu tónleikum Rolling Stones

Tónleikaferðalag vegna tilefnisins eru vafalaust í bígerð

Í dag eru fimmtíu ár frá því að hin víðfræga rokksveit The Rolling Stones héldu sína fyrstu tónleika, á Marquee-klúbbnum í London.

Meðal þeirra viðburða sem eru vegna tilefnisins er ljósmyndasýning sem skartar myndum frá löngum ferli hljómsveitarinnar og þá mun bókin Rolling Stones 50 verða gefin út. Bókin fjallar náttúrulega um feril hljómsveitarinnar og arfleifð hennar.

Ekkert hefur verið gefið út um hvort þeir haldi tónleika vegna tilefnisins, en hljómsveitarmeðlimir hafa látið ýmislegt falla sem gefur til kynna að þeir muni stíga á stokk á næstunni. „Við erum svona að kasta hugmyndinni til og frá og höfum æft nokkrum sinnum,“ sagði Keith Richards við breska ríkisútvarpið. „Við höfum hist og spilað og það var geggjuð tilfinning.“

Þá segir hann líklegt að hljómsveitin fari í tónleikaferðalag til þess að fagna afmælinu. „Hlutirnir eru í bígerð; ég held að það muni pottþétt gerast. En hvenær það gerist get ég ekki sagt um,“ sagði hinn hrumi gítarleikari sveitarinnar.

Fimm ár eru liðin frá síðasta tónleikaferðalagi sveitarinnar. Fyrir fimmtíu árum síðan tróðu þeir upp í fyrsta sinn í Marquee-klúbbnum í London. Þar hafa fjölmargir frægir tónlistarmenn komið fram í gegnum tíðina og má í því samhengi nefna Bítlana, Eric Clapton og Yardbirds, Jimi Hendrix Experience og The Who.

Ári eftir tónleikana á Marquee gáfu Stones út sinn fyrsta smell, sem var útgáfa hljómsveitarinnar af „Come On“ eftir Chuck Berry. Hér má heyra það:


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.