Arnór Gudjohnsen, fótboltakappi, greinir frá því í nýjasta tímariti Séð og Heyrt að á Pollamóti Þórs á Akureyri hafi hann verið sleginn niður í miðjum knattspyrnuleik og þurfti að leita sér læknisaðstoðar eftir leikinn þar sem hann fann fyrir taugaverkjum í báðum höndum og sé enn að berjast við meiðslin.
„Ég skil ekkert hver ásetningurinn var þar sem boltinn var ekki einu sinni í leik,“ segir Arnór í samtali við Séð og heyrt, en segir að á löngum ferli sínum hafi hann þó aldrei upplifað slíkan hrottaskap og hann verði því líklega ekki með að ári.
Hann segist hafa tekið þátt í Pollamótinu í fjölmörg ár en hefð er fyrir því að þar sé spilaður leikur „öldunga“ þar sem knattspyrnukempur koma saman og sýna listir sínar.
Þess má geta að nýjasta hefti Séð og Heyrt er að þessu sinni ritstýrt af nýjum ritstjóra, Björk Eiðsdóttur.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013