Kyle Glover, 11 ára gamall stjúpsonur poppstjörnunnar Usher, lenti í alvarlegu slysi fyrir helgi þegar að hann varð fyrir svokölluðum sjóketti eða Jet-ski. Hann var svo á mánudag úrskurðaður heiladauður eftir slysið. Frá þessu greinir vefsíðan TMZ en Kyle er sonur fyrrverandi eiginkonu Ushers, Tameka Foster.
Kyle var ásamt 15 ára gamall vinkonu sinn á uppblásinni blöðru á Lanier-vatni í Georgífylki þegar keyrt var á þau á vatninu með fyrrgreindum afleiðingum.
Vinir Usher hafa lýst yfir stuðningi við hann og fjölskyldu Tameku á Twitter. Fólk eins og Fantasia og Russell Simmins kvöttu fólk til að biðja. Usher og Tameka hafa staðið í hatrömmum skilnaðardeilum en þrátt fyrir það leigði Usher einkaþotu fyrir fyrrverandi um leið og hann heyrði af slysinu til að Tameka gæti komist á sjúkrahúsið. Þar sem Usher hitti þau svo fyrir skömmu seinna.

Hemmi Gunn fallinn frá