Bandaríska leikkonan Katie Holmes leitaði ráða hjá fyrrverandi eiginkonu eiginmanns síns Tom Cruise áður en hún óskaði eftir skilnaði. Holmes og Nicole Kidman eru sagðar hafa verið vinkonur eftir að þær kynntust árið 2006 þegar Holmes giftist Cruise. Kidman skildi við Tom Cruise árið 2001 eftir ellefu ára hjónaband. Saman ættleiddu þau tvö börn, Isabellu og Connor.
„Þær hafa átt nokkur samtöl á síðastliðnum tveimur vikum,“ sagði heimildarmaður við bandaríska tímaritið US Weekly. „Nicole hefur veitt henni stuðning og sagt Katie að hún hafi verið í svipaðri aðstöðu.“
Þegar hjónaband Cruise og Holmes var í molum og Holmes hafði áhyggjur af framtíð dóttur þeirra Suri leitaði hún ráðgjafar frá Nicole Kidman.
„Nicole bauðst til að vera henni innan handar,“ sagði heimildarmaður US Weekly.
Cruise og Holmes náðu samkomulagi um skilnaðinn ellefu dögum eftir að Holmes hafði óskað eftir skilnaði. Er Cruise sagður hafa komist hjá því að fara í gegnum erfið réttarhöld vegna málsins og að nákvæmar útlistingar á tengslum hans við Vísindakirkjuna kæmu fram í dagsljósið.
Talið er að Holmes muni fara með forræði yfir Suri en Cruise á að fá að hitta barnið reglulega.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi