Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:13 › 10. júlí 2012
Mario Götze, vonarstjarna þýska landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður þýskalandsmeistara Dortmund, er ekki lengur bara frægur fyrir að spila knattspyrnu eftir að myndir náðust af kappanum með holdris í sumarfríinu.
Götze var staddur á spænsku eyjunni Ibiza þar sem hann slakaði á eftir Evrópumótið í knattspyrnu en hann fór alla leið í undanúrslit með þýska liðinu. Götze var staddur á snekkju ásamt glæsilegri ungri konu sem var í baðfötum einum klæða. Virðist það hafa reynst ungstirninu ofviða.
Götze reyndi svo að fela standpínuna með því að fá sér sæti en það bar ekki tilætlaðan árangur eins og sjá má.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi