Drottning trúðaklámsins lést úr krabbameini

Frestaði að leita sér læknisaðstoðar því hún hafði ekki sjúkratryggingu

Klámmyndaleikkonan Hollie Stevens, frá San Fransisco í Bandaríkjunum, lét nýverið lífið eftir baráttu við krabbamein.

Hollie var aðeins þrítug þegar hún andaðist á sjúkrahúsi en hún var oftast nær kölluð Drottning trúðaklámsins. Krabbameinið hafði dreift sér í bein, lifur og heila. Hún giftist unnusta sínum nýverið en hún hafði leikið í 170 myndum og hlotið verðlaun fyrir leik sinn.

Áður en hún lést sagðist hún vilja að hennar yrði minnst sem góðrar eiginkonu og vinar, frekar en klámmyndaleikkonu.

Hún greindist með brjóstakrabbamein síðastliðið vor en brjóstið var að lokum fjarlægt eftir nokkra mánaða lyfjameðferð.

Hún frestaði að leita sér hjálpar eftir að hún fann hnúð í brjóstinu vegna þess að hún var ekki með sjúkratryggingu. Vinir hennar, fjölskylda og aðdáendur söfnuðu 16 þúsund dollurum til þess að borga lækniskostnaðinn.

Hún lést á sjúkrahúsi í San Fransisco þriðja júlí síðastliðinn en eiginmaður hennar var henni við hlið og hélt í hönd hennar, að því er fram kemur á vef breska dagblaðsins Daily Mail.

Þar kemur fram að hún hafði birt myndir af sér á sjúkrahúsinu fyrir aðdáendur sína á samfélagsmiðlunum Facebook og Twitter, þar sem hún virtist afar glaðvær þrátt fyrir heilsuleysi.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.