„Ég hef metnað til þess að vera í forystu Samfylkingarinnar“

Róbert Marshall vill fara í ríkisstjórn

Eftir að Róbert Marshall sagði skilið við áfengið hefur hann ekki bara meiri orku í fjölskyldulíf, fjallgöngur og langhlaup heldur í starf sitt líka. Hann hefur mikinn metnað og ætlar sér langt. „Ég hef sumpart upplifað það þannig að ég hafi setið á aftari bekkjunum í þinginu síðustu þrjú árin. Mér finnst ég hafa náð að vinna ágætlega út frá þeirri stöðu og það hefur verið lærdómsríkt, en ég vil framar. Ég hef metnað til þess að vera í forystu Samfylkingarinnar í næstu kosningum og sitja í næstu ríkisstjórn,“ segir hann.

Róbert er þingmaður Suðurkjördæmis en hann á sterkar rætur þar. Hann ætlar þó ekki að bjóða sig fram í því kjördæmi í næstu kosningum. „Þrátt fyrir að ræturnar séu í Suðurkjördæmi þá hef ég verið búsettur í Reykjavík síðustu 20 árin og á þar gott tengslanet og stóran stuðningshóp og því hef ég ákveðið að bjóða mig fram þar í næstu kosningum. Þar fyrir utan hef ég aldrei litið á mig sem sérstakan kjördæmaþingmann og er alfarið á móti núverandi kjördæmaskipan. Hlutverk mitt og allra þingmanna er að hugsa um hagsmuni landsins í heild,“ segir hann.

Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, horfði upp á föður sinn veslast upp í alkóhólisma. Sú reynsla varð til þess að hann ákvað sjálfur að segja skilið við áfengið þar sem hann vildi ekki að börn sín þyrftu að upplifa það sama og hann. Róbert segir lífsgæði sín hafa aukist svo að það sé lyginni líkast. Hann stefnir á forystu innan Samfylkingarinnar fyrir næstu kosningar og sæti í ríkisstjórn. Róbert er í viðtali í helgarblaði DV.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.