Ívar Ingimarsson átti góða æsku í litlum bæ úti á landi þar sem krakkarnir léku lausum hala á meðan fullorðna fólkið vann upp til hópa í frystihúsinu. Fótboltinn átti hug hans og hjarta og þegar hann varð sextán ára flutti hann til Reykjavíkur til að freista gæfunnar, spila fótbolta í fyrstu deild og komst inn í landsliðið. Þaðan lá leiðin út í heim þar sem hann fékk himinhá laun fyrir að eltast við boltann. Það lá samt alltaf ljóst fyrir að einn daginn ætlaði Ívar að snúa aftur heim og nú er hann kominn, 35 ára gamall fjölskyldufaðir sem vill veita börnunum sínum sama frelsið og hann upplifði í æsku. Nema hvað, gamla þorpið á lítið skylt við minningarnar úr æsku, búið er að loka frystihúsinu, fjölmargir eru fluttir í burtu og fátt er um að vera.
Ívar ákvað því að setjast að á Egilsstöðum, þar sem hann býr í nýju hverfi sem kennt er við bakkana. Enn eru mörg húsin óseld, söluskiltum er stillt upp í gluggana og húsin standa auð. Það breytir því ekki að hér líður Ívari vel. Húsið hans stendur við ána og náttúran blasir við þegar horft er út um eldhúsgluggann. Hann er enn í sínum landsfjórðungi, bara í bæ sem býður upp á fleiri möguleika.
„Ég setti mér það markmið að vera kominn heim þegar ég yrði 35 ára og það stóðst svona nokkurn vegin. Við vildum búa þar sem fjölskyldan er og fjölskyldur okkar eru á Íslandi. Og þar sem við erum bæði að austan, ég frá Stöðvarfirði og konan mín frá Breiðdalsvík langaði okkur til að setjast að hér fyrir austan. Okkur langaði líka að leyfa krökkunum að kynnast þessu frjálsræði, að fá að upplifa það að geta gengið sjálf í skólann. Það er frábært að búa við slíkar aðstæður. Úti var þeim fylgt inn á skólalóðina og þau léku sér aðallega í lokuðum bakgarði heima. Þau höfðu aldrei kynnst því að fara út og banka upp hjá félögunum til að spyrja hvort þeir vildu koma út að leika, þetta er bara ekki þannig þar,“ segir Ívar.
Ívar Ingimarsson er komin heim og hættur í atvinnumennsku eftir tólf ára feril í Bretlandi. Hann ræddi við blaðamann um atvinnumennskuna og álagið sem fylgir henni, fjarveruna frá fjölskyldunni og frelsið sem hann vildi veita börnunum sínum. Hann ræðir einnig um breytingarnar á samfélaginu austur á fjörðum, álverið sem kom, störfin sem töpuðust og gamla þorpið sitt, jörðina sem hann keypti undir ferðaþjónustu og hugmyndabankann sem hann stofnaði á netinu. Ívar Ingimarsson er í viðtali í helgarblaði DV.


Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi