Jón Stóri og Gunnar Nelson svara sögusögnum

Hafa ekki einu sinni hist

Jón Stóri er iðulega milli tannanna á fólki og sögurnar um hann virðast alltaf lifa góðu lífi þrátt fyrir að hann sé að eigin sögn búinn að vera „góður strákur“ síðustu mánuði. Einn þrálátasti orðrómurinn um hann er að hann og Gunnari Nelson hafi lent saman. Fyrst átti það að hafa gerst í Eyjum í fyrra en nú seinast átti það að hafa gerst á veitinga- og skemmtistaðnum Austur og sagði sagan enn fremur að Gunnar hafi snúið Jón niður.

„Þetta er bara mesta bull í heimi. Ég hef ekki einu sinni hitt Gunnar Nelson, auglitis til auglitis. Ég horfi á bardagana hans og ég er bara ýkt stoltur af því að vera Íslendingur þegar ég horfi á hann berjast. “ sagði Jón Stóri í samtali við DV. „Ég er líka eiginlega hættur að stunda miðbæinn, fer bara nánast aldrei niðrí bæ um helgar, kíki í mesta lagi einn rúnt á Laugaveginum. Ég er byrjaður að lyfta aftur á fullu eftir eins og hálfs árs pásu frá því.“

Gunnar Nelson neitaði líka fyrir þetta í samtali við DV. „Þetta er algjört bull. Ég hef heyrt þessa sögu milljón sinnum og margar svipaðar sögur en þetta er algjört rugl. Við höfum ekki einu sinni talað saman.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.