Beint frá Bakú í mastersvörn

Gréta Salóme kláraði master með stæl

„Ég kom heim og nánast beint í að verja mastersverkefnið mitt,“ segir Greta Salóme Stefánsdóttir Eurovision-fari en hún útskrifast á laugardag með mastersgráðu í tónlist frá Listaháskóla Íslands. Greta gerði það gott og fékk 9 í einkunn fyrir verkefnið, sem verður að teljast glæsilegur árangur þar sem hún var á sama tíma að undirbúa sig og keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision, í fullu starfi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess spila á fjölmörgum öðrum stöðum og undirbúa sína fyrstu plötu.

Lagið partur af verkefninu

„Verkefnið var fólgið í því að sýna fram á mínar hugmyndir um heildrænan tónlistarmann. Meðal annars hvernig þær hugmyndir voru framkvæmdar í kringum lagið Mundu eftir mér,“ segir Greta og var því Eurovision-framlagið í raun partur af verkefninu en óhætt er að segja að Greta hafi sýnt fram á hvað það er að vera heildrænn tónlistarmaður með því að semja lagið, útsetja það, leika á hljóðfæri og syngja.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.