Mikið var um dýrðir á verðlaunahátíð útvarpsstöðvarinnar FM957 fór fram í Hörpu á laugardagskvöldið. Á hátíðinni komu fram listamennirnir Jón Jónsson, Friðrik, Dór, Sverrir Bergmann og hljómsveit, Sykur, Emmsjé Gauti, Gabríel ásamt Opee, Valdimar og Unnsteinn Manuel úr Retro Stefson auk þess sem Tiny úr goðsagnakenndu hljómsveitinni Quarashi flutti nýtt lag. Kynnir hátíðarinnar var sjónvarpsstjarnan Björn Bragi.
Poppstjörnurnar skinu skært á hátíðinni en það var söngvarinn sykursæti, Jón Jónsson, sem var valinn söngvari ársins. Söngkona ársins var hin sjóðheita Þórunn Antonía. Rokksveitin Jet Black Joe fékk sérstök heiðursverðlaun en það kom líklega engum á óvart að hljómsveitin Of Monsters and Men hafi verið valin besti flytjandi ársins sem og nýliðar ársins enda er sveitin á barmi heimsfrægðar.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013