Diamond vill láta dekra við sig

Gamli refurinn Neil Diamond er þurftafrekur

Gamli refurinn og söngvarinn, Neil Diamond, segist vilja láta dekra við sig. Neil er 71 árs og nýgiftur Katie McNeil sem er 42 ára. Katie hefur sagt að hann sé alls ekki auðveldur í sambúð.

„Ég hef loksins fundið einhvern sem ég elska og elskar mig,“ segir hann. „Hún sinnir vel því verkefni að vera konan mín vegna þess að ég er frekar þurftafrekur.“

Spurður að hvaða leyti hann sé þurftafrekur segir hann: „Þegar ég þarf á konunni minni að halda, þá þarf ég á henni að halda strax. Svo að konan mín verður að hætta því sem hún er að gera þá stundina og sinna mér. Á sama hátt og ég myndi sinna henni.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.