Leikkona úr Desperate Housewives fallin frá

Lést úr lungnakrabbameini

Kathryn Joosten sem þekkt er fyrir leik sinn í Aðþrengdum eiginkonum og Vesturálmunni, er látin 72 ára að aldri. Hafði hún glímt við lungnakrabbamein í 11 ár.

Á ferli sínum vann Joosten til tveggja Emmy-verðlauna. Í Aðþrengdum eiginkonum lék hún hina önugu Karen McCluskey sem, að ósk leikkonunnar, var látin deyja úr lungnakrabbameini í síðustu seríunni.

Kathryn Joosten skilur eftir sig tvo syni og tvö barnabörn.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.